Helga & Sandra :)

15.05.2008 16:41:23 / Sandra

Nýtt!!!






Nýttnýttnýttnýttnýttnýttnýttnýtt!  http://www.noregsfari.bloggar.is





» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2008 08:52:50 / Sandra

"Helvítis Lassý"

Voðalega hefur maður verið latur hérna...satt að segja hefur mig bara ekkert langað að tjá mig og sé að bloggsíður eru ekkert að meika það núna.

Nú eru hins vegar komnir tæpir 2 mánuðir síðan ég bloggaði síðast! og auðvitað hefur maður ekki setið aðgerðarlaus í allan þennan tíma...

...en mig langar ekkert að segja frá því sem er búið að gerast... langar frekar að tala um það sem er að fara að gerast;)

Núna eru bara 25 dagar þangað til ég fer til Noregs. Ég er nú farin að hlakka asskoti mikið til þó það eigi nú eftir að vera skrítið að fara ekki í grilljón útilegur með ÍR-ingunum og æfa á kastvellinum og hitta stelpurnar og Arnór:/ En í staðinn verð ég betri í sleggju vonandi.

Skólinn er alveg að verða búinn, bara nokkur lokaverkefni eftir...fer svo í sveitina á milli prófa því ég fer í próf 5. 6. og svo ekki fyrr en 14. Ætla þess vegna að skella mér í smá sauðburð áður en ég fer út 18.

Hafið það gott
-Sandra

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 10:30:17 / Sandra

Þessi dagur byrjar vel...

...eða ekki!

Þoli ekki að lenda í svona!:evil: Sko, þannig var að í morgun átti ég að mæta í skólann kl. 9.10 eins og alla aðra mánudaga. Dagurinn byrjar á þýsku hjá Ragnhildi Páls sem er algjört ofurkvendi og verður aldrei veik! Ég sem sagt vaknaði og fékk mér morgunmat og var allan tíman að velta fyrir mér hvort ég ætti ekki að kíkja í tölvuna sem var btw við hliðina á mér og tékka hvort ég væri nú ekki svo heppin að í dag væri einhver kennarinn minn veikur...njaaa...ég ákvað nú að vera ekkert að leggja það á mig þar sem það gerist nú bara aldrei að Ragnhildur verði veik svo ég hélt bara áfram að fletta Fréttablaðinu. Svo er ég komin út í bíl og er að fara að starta honum þegar ég fæ sms frá Lilju og þar tjáir hún mér þær gleðifréttir að Ragnhildur sé VEIK! Ok, jess en neinei! ég var nýbúin að skella útidyrahurðinni hjá Arnóri (og ég var síðust út) og mín ekki með neina lykla! Til að toppa þetta allt saman þá er ég í eyðu eftir þýskutímann sem þýðir að ég þarf ekki að mæta í skólann fyrr en 11.30!!!
Sit núna reið og bitur út í lífið inni á bókasafni (í skólanum), ætlaði að reyna að læra eitthvað en þið vitið hvernig þetta er....það er ALLTAF eitthvað meira spennandi að gera heldur en að fara að læra:P

Jæja, þýðir ekki að vera bitur endalaust. Ég get sagt ykkur frá skemmtilegu helginni minni!:D:D

En ég ætla samt að byrja á að segja ykkur að ég fór á útgáfutónleika Bermúda á miðvikudaginn á Rúbín. Þetta voru bara hinir bestu tónleikar verð ég að segja og ekki skemmdi fyrir að staðurinn var geggjað flottur! Við erum að tala um það að á meðal áhorfenda voru engir aðrir en meðlimir Eurobandsins! OMG! Friðrik Ómar hefur náð að halda aftur af sér í þetta skipti því hann lét engin "skemmtileg" ummæli falla í þessari samkomu...

Um helgina fórum við Arnór í ammæli til Sölva þar sem drengurinn var að fagna því að vera orðinn tvítugur! Fengum voðalega góðan mat og skemmtum okkur mjög vel. Arnór var valinn vinsælasti gestur kvöldsins þar sem hann æddi um allt hús vopnaður vatnsbyssu og sprautaði óspart á aðra gesti. Ég saknaði Birnu mjög mikið þetta kvöld því margar góðar minningar rifjuðust upp í þessu afmæli:P:P
Planið var að fara í bæinn eftirá en það voru svo margir þar, endalausar biðraðir (og drullukalt úti) þannig að við fórum bara heim að lúlla.
Í gærkvöldi fórum við á skólaleikrit FG, Birdcage þar sem m.a. Lilja og Guðrún Linda voru að troða upp. Þær stóðu sig mjög vel og var þetta bara mega leikrit;)

En nú má mann fara að hlakka til fyrir alvöru því það eru bara 9 dagar í Tenerife! Fullt af æfingum, fullt af sól, fullt af skemmtilegu fólki og vonandi fullt af karóki og súlum hehe:P

Hafið það gott kæra fólk!

kv. Sandra

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 14:57:35 / Sandra

Almennileg færsla hér á ferð...

ummmm...Me like the new look:D
Já, GTA stendur nú alltaf fyrir sínu, vorum með þetta þema fyrir einhverju síðan. Hitt var einfaldlega aaaaðeins of bleikt fyrir minn smekk:S

Það sem er hels í fréttum er að:

ÍR-ingar gerðu sér lítið fyrir og unnu bikar!!!
Hversu mikil snilld er það?? Ég var í algjörri sigurvímu eftir mótið og líka þvílíku spennufalli. Við nefnilega unnum FH með bara einu stigi og réðust endanleg úrslit í síðustu grein, boðhlaupi karla, þar sem röddin var ekki spöruð í hvatningaröskrunum.
Allavega glæsilegur endasprettur á þessari mótatörn sem hófst einhverntíman í janúar. Núna tekur ekkert annað en stíf sleggjuþjálfun við svo maður geri ekkert nema góða hluti næsta sumar.

Það styttist svo mikið í Tenerife að ég trúi því varla! Ég fer samt alltaf á pínu bömmer þegar ég hugsa til þess að ég verði ekki með þér í herbergi Helga mín:( Ég held að þú sért orðin ómissandi hluti af öllum mínum ferðalögum.

Það má nú svo ekki gleyma þvi að það er líf eftir Tenerife (hehe "það er líf eftir samræmdu prófin") því þá brunar maður bara norður til að passa sveitina og belgja sig út af kökum og gúmmelaði í fermingunni hennar Thelmu;) aaahh...mér líst vel á þetta plan.

Annars er alltaf nóg að gera...Bermúda er með útgáfutónleika á morgun og að sjálfsögðu ætla aðal grúppíurnar að mæta (sem sagt mamma og ég). Bikargleði á fimmtudaginn....kannski afmæli um helgina....leikhús á sunnudaginn....(nú, svo fær maður útborgað þarna einhverntíman sem er auðvitað alltaf mikið gleðiefni)...Börkur með tónleika á mánudaginn...gellupartí....og svo Tenerife. Helvíti góð dagskrá!:D

Arnór: Það má svo líka alltaf plögga einni keiluferð þarna inn á milli til þess að ég geti endanlega sannað fyrir þér að ég er BEZT í keilu:P:P

Draumur næturinnar var nú ekki af verri endanum: Mín var bara farin að vinna í dýragarði, hugsa um ljónin og óþægar dingóhýenur (hvað sem það nú er), já, og Börkur var að vinna í dótadeildinni í zoo-inu;)

kv. Sandra

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 12:40:27 / Sandra

111

Dííí maður! Það er búið að breyta svo miklu í þessu kerfi að ég veit ekkert hvað ég er að gera hérna...við Helga þurfum að finna eitthvað út úr þessu svo síðan verði nokkurnvegin aftur eins og hún var;)

Það er annars bara allt gott að frétta af okkur. Ég er búin að vera að keppa undanfarið, það hefur gengið frekar misjafnlega... Eitt mót eftir og þá er innanhússtímabilið búið. Þá erum við að tala um að það eru bara nokkrir dagar í að ég fari út til Tenerife!!!:D Ég er veeeerulega spennt;)

Það er nú svo margt sem ég gæti sagt ykkur en ég er ekki að nenna að fara að telja upp hvað ég er búin að vera að bralla síðasta mánuðinn...verð samt að segja ykkur að ég og Helga skelltum okkur á Benny Benassi um daginn. Það var GAMAN! Sjitt hvað fólk var í ruglinu þarna!:D Við vorum pínu í ruglinu líka eftir að hafa dópað okkur upp af þrúgusykri:P

Ég verð líka að segja ykkur svolítið skemmtó sem gerðist um helgina. Ég RÚSTAÐI Arnóri og Sigurjóni í keilu og feisaði þá svo svakalega að þeir eru ekki búnir að ná sér enn! Hehe þeir höfðu eitthvað litla trú á mér því síðast þegar við fórum þá skeit ég svo upp á bak að þeir höfðu enga trú á að ég gæti nokkuð í keilu:P maður leynir á sér8)

Jæja, ég ætla að fara að koma mér í tíma og halda áfram með skúlptúrinn minn sem er mega stuð að gera;)

kv. Sandra

» 5 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 17:33:51 / Sandra

Bónus skinka eða reykt eðal skinka??!

Bloggtími...!

...svona í tilefni þess að það er fimmtudagur og ég er að fara að lyfta eftir nokkrar mínútur...

Allavega, lífið er að komast í fastar skorður eftir jólafríið. Skólinn, æfingar og vekjaraklukkan! Maður finnur það líka greinilega í öllum skrokknum að maður hafi verið í fríi! Harðsperrurnar ákváðu að vera sérlega vondar við mig núna:S

Heyrðu! Við Lilja fundum hreinræktaða skinku í skólanum í fyrradag!!!! Við erum að tala um ekta gourme skinku sem alveg glansaði eftir ljósatímana sína:D Við skemmtum okkur vel og lengi við að horfa á hana;) Já, þessi skóli sko! Skólastjórinn ákvað líka að það væri mjög mikilvægt að halda nemendum upplýstum um skólasóknarreglurnar svo hann bætti einu stykki umsjónartíma inn í stundartöfluna hjá öllum elskulegu nemendum sínum, alltaf á miðvikudögum klukkan hálf 11.

Annars held ég að ég sé að verða eitthvað klikkuð. Mig dreymdi í nótt að ég væri að drekkja mjög slepjulegri útgáfu af Gollum í LOTR á eldhúsgólfinu hjá ömmu! Mamma og pabbi sátu pollróleg og lásu fréttablaðið við eldhúsborðið á meðan ég átti fullt í fangi með að drekkja kvikindinu sem vildi alls ekki drukkna og tókst alltaf á einhvern undraverðan hátt að ná í súrefni8|. Ætli ég sé ekki bara búin að horfa aaaaaðeins of mikið á ævintýramyndir og lesa yfir mig af Harry Potter?!

Jæja, byssurnar stækka ekki af sjálfu sér:P:P:P:P:P

kv. Sandra


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 15:15:21 / Sandra

Akranes er algjör snilld!

Hihi:lol: það er svo langt síðan ég skráði mig inn á síðuna að ég gerði vitlaust lykilorð!!:S

Það er annars allt fínt að frétta...ég er orðin mörgum jólasteikum feitari og mörgum fötum ríkari eftir jólin. Fékk aðallega föt í jólagjöf, sem er náttúrulega æði!!:D

Veit nú ekki alveg hvernig Helga Björt hefur haft það, þar sem hún hefur verið upptekin við að sinna gamla fólkinu á Hrafnistu. Spurning um að hringja í hana og tékka hvort hún sé búin að ná sér eftir áramótin sem áttu víst að hafa verið hriiiikaleg hjá henni:P

Ég fór nú bara upp í bústað um áramótin með familíunni + föðurbróður mínum og fjölskyldu og Arnóri. Það var stemmari...horft á spólur og svona;) Á gamlárskvöld var pabbi svo að spila á Akranesi þannig að ég, mamma og pabbi og Arnór héldum af stað á Akranes í rokinu. Komumst með naumindum þangað og þá tók dansinn við!! Dönsuðum nánast stanslaust í 3 tíma og þar með náði maður að losa sig við allavega eina jólasteik;) Þegar ballið var búið byrjaði fjörið fyrir alvöru! Við komumst nefnilega að því að þetta fólk á Akranesi er ekki bara lítið heldur einnig mjög árasarhneigt. Við horfðum þarna á hver slagsmálin á fætur öðrum þar sem heilu hárlokkarnir fengu að fjúka og morðhótanir flugu um loftið hægri vinstri. Þetta var bara eins og bíó!! Við komum okkur auðvitað vel fyrir í sófanum og fyldumst spennt með:D

Já, þetta var nú fjör;) svo var pabbi víst stoppaður af löggunni á leiðinni heim og látinn blása en ég bara man ekkert eftir því þar sem ég steinrotaðist um leið og ég settist inn í bílinn.

Ógeðslega langar mig að fara að horfa á Næturvaktina núna! Held ég geri það bara...

bæjó!

kv. Sandra


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 18:50:33 / Sandra

Pakkar á morgun!!!

Ég er í vinnunni....aaaalveg að verða búin:D Þá er nú aldeilis málið að fara heim og jólast eitthvað. Ég er búin að vera að sluksa svo mikið þessi jólin...:S

Veit annars ekki hvað ég er að fara að segja ykkur hérna. Manni gekk bara vel í prófum og eftir að þeim lauk hefur vinnan elskulega tekið við.

Djammað á fimmtudaginn. Það var gaman.

Djöfull er ég orðin heilaþvegin hérna! Mér dettur bara ekkert sniðugt í hug til að skrifa:/ gæti náttúrulega alltaf bloggað um túlipana, hyacintur og jólatré en ég efast stórlega um að þið nennið að lesa um eitthvað svoleiðis:P

Best að slútta þessu ómerkilega bloggi.

kv. Sandra sem er ekki enn komin í jólaskap.............


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 14:36:53 / Helga Björt

Jólafríííí:D:D!!


Ég er búin í prófum og komin í jólafrííí:D:D!!

 

Ohh.. vá hvað ég er ánægð með að vera búin með þessi bandsettu próf8) Var að verða geðveik á að lesa endalaust:$! Núna er það bara vinnan, hesthúsið, ræktin og letin:haha:! og jújú... djammið;):P og ég ætla að reyna að mála herbergið mitt fyrir jól:) kannski Jakob vilji gera það fyrir mig þar sem hann þykist vera svo asskoti góður í að mála *hóst*!! *HÓST* hahaha... ekkert illa meint:klikk:;)

Núna eru... 3 dagar í kokteilboðið okkar:D:D ég tel niður ég er svo spennt! eins gott að þetta boð okkar muni standa undir væntingum:P

Ég er farin að njóta frísins8)

Farvel... Saint Helga:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 22:25:32 / Helga Björt

*Ooh - Scissor Sisters*

vá það er svo langt síðan ég bloggaði hérna að ég var næstum búin að gleyma passwordinu...hahaha!:P:$ anyways... ég var að hlusta og er að hlusta á Ooh með Scissor Sisters á meðan ég er að læra fyrir stærðfræðipróf! og ég bara dýrka þetta lag! þetta minnir mig svo á Portúgal fyrr á árinu... sólin, flipp momentin uppá hótelherbergi og ekki má gleyma þegar maður var að gera sig til fyrir djammið! hahaha... við hlustuðum ansi oft á þetta8) bara í iTunes-inu mínu er búið að hlusta á þetta 80 sinnum... og svo plús hvað við erum búin að hlusta oft á þetta í iPodnum! ég verð bara svo ánægð eitthvað þegar ég heyri þetta lag:D

En allavega... ég er í prófum núna eins og langflestir:S! búin að fara í 2 próf af 5. Stærðfræðipróf á morgun og er ég að reyna að læra einhverjar reglur utanað núna! ekki alveg að virka:$:P en það sem kemur manni í gegnum þetta er tíminn sem er framundan:D það verður djammað feiiiiiitt eftir prófin8) fer á MR ballið og get ekki beðið... íííí!! og kokteilboð hjá okkur stelpunum sem ég vona að verði... og Sandra þú verður að mæta líka! :O ertu kannski að fara í lazer tag þá helgi?? ónei... kemur í kokteilboð! og tökum myndir... íííí!!!:D:D svo spennt svo spennt:D:D!! langt síðan ég tók myndir... eða allavega í almennilegu magni! langar í nýjar fleeepp myndir;) ætli það verði síðan ekki farið á brundhunting eins og Hilla kallar það... eða ætli sjálf brundhóran sjái ekki um það! hahahaha... við erum ágætar!:P

En ég er farin að læra þessa ógeðslegu stærðfræði aftur... nei vera jákvæður! þetta er skemmtilegt, þetta er skemmtilegt!:( ekki!

 

Kveðja, Helga Björt... Miss Bright? Helga Flirt? Miss Perla? Helga HB? hahaha!!:P see ya


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 16:08:41 / Sandra

Hvernig getur þetta verið svona erfitt??

Eftirfarandi saga er 100% sönn:

 

Þannig er mál með vexti að í byrjun nóvember fer ég í í bankann, Kaupþing nánar tiltekið. Ég sinni þar mínum erindum og svona í leiðinni spyr ég hvað ég eigi að gera varðandi kortið mitt sem var að renna út í sama mánuði. Konan segir mér að ég þurfi nú aldeilis ekki að hafa áhyggjur því ég fái sent bréf heim á næstunni með spurningu um hvort ég vilji skipta um mynd. Allt í gúddi! Ég fer heim, dagar og vikur líða, ég fer aftur í bankann. Geri það sem ég þarf að gera og segi svo að ég hafi ekki fengið neitt bréf. Konan segir mér þá að ég skuli bara koma með mynd af mér og sækja um nýtt kort, það taki svona 2-3 daga að gera kortið. Nokkrum dögum seinna fer ég í kassann í Kringlunni og læt taka einhverja aulalega mynd af mér til þess að hafa á nýja kortinu. Hugsaði svo með mér að þar sem ég væri nú stödd í Kringlunni gæti ég bara farið í KB þar (mitt útibú er á Suðurlandsbraut). Fór með flottu myndina mína, skrifaði undir pappíra og er spurð hvort ég vilji sækja kortið þangað eða á Suðurlandsbraut. Hingað í Kringluna segi ég. Já, þá máttu bara koma og sækja kortið eftir viku. VIKU!!! Halló! Nóvember var að verða búinn og þar af leiðandi var ég kortalaus í rúma 3 daga í desember! Eða þangað til í dag. Ég er búin að vera niðri í skóla að læra eins og brjálæðingur, fór í próf kl. 13,00 og eftir það ákveð ég að skjótast í Kringluna til að sækja fjandans kortið svo ég geti nú keypt mér að borða. Þegar ég kem í Kringluna er mér sagt að kortið finnist ekki. Ok geggjað! Ég vissi þá náttúrulega strax að það væri niðri á Suðurlandsbraut. Konan hringir út um allt, þangað til hún loksins finnur kortið sem einmitt var niðri á Suðurlandsbraut. Ertu viss um að hafa beðið um að láta senda það hingað spyr hún mig. Auðvitað er ég viss! Ég rauk út og keyrði í hitt útibúið. Jæja, loksins...hitti þjónustufulltrúa sem fór og náði í kortið mitt, lét mig kvitta, rétti mér kortið en NEI!!! Það var náttúrulega bara of gott að þetta væri að gerast. Fólkinu í bankanum tókst auðvitað að klúðra einu atriði í viðbót. Þau settu gömlu myndina af mér á kortið (sko, síðan ég fermdist) og höfðu ekki breytt undirskriftinni! Nú, var mín búin að fá nóg! Ég sagði kellingunni að það ætti að vera ný mynd! Nú?? Æjæj.... hún leitaði í tölvunni og spurði svo er þetta myndin? Já, þetta var myndin. Og viltu þá fá nýtt kort?? JÁ! Ok, þú færð það eftir svona 2 daga;)

 

OMG! þið getið ekki trúað pirringi mínum!!! Ég skalf og titraði af reiði og þurfti nánast að hlaupa út úr bankanum svo ég myndi ekki valda skaða á mér og öðrum! Mér líður samt mun betur eftir að hafa baunað þessu út úr mér á alheimsvefnum og get því haldið sátt í skólann á ný til þess að læra:)

 

Bestu kveðjur

Sandra


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 17:25:19 / Sandra

Hitt og þetta...

Mikið hrikalega er maður orðinn latur við að skrifa eitthvað hérna! Ég hef ekki verið í stuði fyrir blogg í langan tíma. Allt í einu kom samt löngunin yfir mig:D eða eins og Fúsi segir ANDINN!!

Það er svo sem ekkert brjálað slúður og subbulegar fréttir sem ég get skrifað um...

Það er reyndar búið að skýra litla frænda. Hann heitir Trausti Helgi og er mesta rúsínurassgat í geimi! Hann er svo lítill og sætur að það lá við að ég rændi honum! Ég var sem sagt fyrir norðan um helgina að skoða litla krílið og borða kökur:)

Það er allt á fullu í skólanum, enda ekkert skrítið þar sem jólaprófin byrja í næstu viku. Ég hlakka alveg óstjórnlega mikið til að vera búin með þau! Þá tekur vinnan við svo maður verði ríkur og komist í eitthvað af þessum utanlandsferðum sem eru á dagskránni.

Æfingarnar ganga líka vel. Loksins! Bansett orkuleysi var að gera útaf við mig á tímabili. En eftir að ég fór að dópa mig upp af vítamínum hefur þetta skánað til muna;) Nema ég held að ég hafi tognað í puttanum á æfingunni í gær:/ æjæj...

Jæja...ég hef eitthvað voðalega lítið að segja núna. Þarf líka að fara að koma mér í höllina;)

kv. Sandra


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 18:46:20 / Sandra

Hausinn er tómur!

Ég fór í skólann í dag. Það var dimmt þegar ég lagði af stað í Garðabæinn, og þegar ég var búin í skólanum var ennþá dimmt! Kannski ég hafi bara misst af birtunni. Það hefur því verið eintómt myrkur í lífi mínu í dag. Samt ekkert andlegt. Bara veðurfarslegt. Reyndar var ég alveg til korter í 6 í skólanum. Inni á bókasafni að nördast við að vinna verkefni. Dugleg ég!:D Og vegna þess hversu dugleg ég hafði verið þá gaf ég sjálfri mér ís sem mig er búið að langa í í allan dag. Sit núna í mestu makindum og borða hannJ veit samt ekki hversu gott ég hef af honum:S verð bara feit af því að ég hef ekki farið á æfingu svo lengiL 

Það var gaman í skólanum. Margar ástæður fyrir því.            

  • Mér og Lilju var líkt við lélega teiknimynd.           
  •  Ég lærði um nærbuxnableik málverk.           
  •  Ég kláraði að leira Pál. Skúlptúrinn heitir reyndar ekki Páll, heldur gaf ég honum nafnið Moli.          
  •   Og Lilja týndi skónum sínum:D Bara öðrum samt, svo það var ræstur út leitarflokkur sem fann skóinn að lokum. 

Allt eru þetta góðar og gildar ástæður fyrir skemmtilegum skóladegi mínum. 

 

 Ég eignaðist litinn frænda á föstudaginn. Hann er ekki krumpaður og blár...heldur voða voða sætur og fínn eins og stóra frænka sín!:D Til hamingju frumbyggjarnir mínir!:D Nú hef ég góða afsökun fyrir því að mæta ekki á laugardagsæfingu. Maður verður nú að sjá drenginn áður en hann fer að labba! 

Helvítis veikindi! Í dag var fyrsti dagurinn sem ég steig út fyrir hússins dyr síðan á fimmtudaginn. Ég hef aðallega fundið mér það til dunds að horfa á spólur, og það miiikið af spólum! Alla Lord of the Rings seríuna, skemmtilegar myndir, leiðinlegar myndir, langar myndir, stuttar myndir, spennumyndir, ógeðslegar myndir og meira að segja horfði ég tvisvar á sömu spóluna á sama deginum! Hversu sorglegur getur maður orðið í veikindum sínum?! Jú! Ég get toppað þetta! Horfði einn daginn á endursýningu af þremur Dr. Phil þáttum!!!! Röddin mín er að koma aftur. Hún ákvað að bregða sér í smá frí á meðan á þessum veikindum stæði. Gat alls ekki talað frá föstudegi til sunnudags:-/ 

Þið hafið væntanlega öll lent í því einhverntíman að keyra fyrir aftan eða við hliðina á fólki í ökukennslu. Ég lendi allavega svolítið oft í því og með fullri virðingu fyrir þessu fólki þá finnst mér það hálf óþægilegt. Mér finnst alltaf einhvern veginn eins og þau séu alveg að panikka við stýrið og séu að fara að klessa á mig. Ég veit alveg að þetta er ekki svona og ég þekki helling af fólki sem er að læra að keyra og stendur sig mjög vel. Svo er alls ekki langt síðan ég var að læra á þetta allt saman. Samt fæ ég alltaf smá óþægindatilfinningu í magann þegar þetta fólk birtist fyrir framan mig. Ég bara get ekki að því gert. Þetta er nú samt frekar fáranlegt þar sem fullt af þessu fólki er kannski líka komið með æfingaakstur og er alltaf á rúntinum með múttu án þess að ég viti af því nálægt mér. Þetta er líka fáránlegt vegna þess að tæknilega séð eru fjögur augu að fylgjast með veginum og fjórar lappir á bremsubúnaðinum! Það er nú helmingi meira en ég get státað af þegar ég er að keyra! Þegar öllu er á botninn hvolft þá er fólk í ökukennslu held ég bara einir öruggustu ökumennirnir í umferðinni miðað við það að þeir eru með heila manneskju sér til aðstoðar......en ég er SAMT hrædd við það:P 

Er málið að slútta þessu? 

Hey stelpur! Ég vil að við förum að skella okkur í bíó allar saman. Hvað segiði um það? 

Kv. Sandra


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 18:31:21 / Sandra

Afmæli = full time job!

Getiði hvað ég er að gera.....

 

 

....RITGERÐARÓGEÐ Í ENSKU. Fokking leiðinlegt! Ég er alveg að andast hérna og næ ekki að einbeyta mér að þessu drasli í meira en 5 mínútur! Og ég sem ætti að vera á jóga-æfingu....fussumsvei. En sökum lélegrar heilsu þessa stundina var mér það bara ómögulegt að fara á æfingu. Fór í gær og það var ekki sniðugt:S Kannski þetta sé bara aumingjaskapur, ég veit ekki.

Vetrarfríið er búið. Ég fór í bústað. Með fólki. Sem var gaman. Mikið borðað. Og horft á fullt af spólum. Farið í pottinn. Farið á Gullfoss. Og Geysi. Rúntað á Laugarvatn. Og borðuð pizza. Með flugum á. Hlustað á techno. Mikið af techno-i!

Já, svona var þetta bara frekar mikið;) Góð slökun þó ekki hafi nú verið sofið neitt ofboðslega mikið:P

Má ég annars spyrja ykkur að einu? Er þessi rigning eitthvað grín?! Mér finnst þetta allavega ekki skemmtilegur djókur hjá veðurguðunum! Herdís! Þú ert ekki að standa þig í þú veist hverju!:P:P Farðu að gera eitthvað í því kona:O

Mútta á afmæli í dag...Herdís á afmæli á morgun...og svo eigum við Arnór 7 mánaða afmæli á sunnudaginn...awww en sætt!

Því er helgin þéttskipuð afmælisveislum:) ÍR-ingar eru ekki sáttir. Þeir ætla að halda blót á morgun og fannst ég eitthvað vera að dissa þá þegar ég sagðist ekki komast vegna þess að ég væri að fara í ammæli:S Svona er þetta...

En sjæse! Ég var í félagsfræði í dag og við vorum að gera verkefni í hópum. Sem var nokkurnveginn þannig að við áttum að ímynda okkur ef allur skólinn festist á eyðieyju. Sem sagt áttum við að búa til samfélag og eitthvað þannig kjaftæði. Ég fór nú aðeins að hugsa...:Föst á eyðieyju með skólanum....hummm:frown: EKKI SNIÐUGT! skinkurnar gætu ekki sléttað á sér hárið hahahahahahahahahahaha:D:D:D:D Þetta var skondin uppgötvun alveg þangað til kom að þeim kafla þar sem þurfti að halda samfélaginu gangandi með fólksfjölgun...say what?! Held að mini-FG-ingar séu klárlega EKKI málið úff!

Held að það sé að koma sterkt inn að klára ritgerðarfjandann. Annars gæti svo farið að ég þyrfti að skippa einu afmæli eða svo vegna lærdóms! Ekki viljum við láta það gerast.

I'm outtie

Sandersen


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 17:19:00 / Sandra

Höfrungar og búrhvalir eru sko skemmtilegt umræðuefni!

Þá er helgin barasta búin...en það er allt í lagi því það bíður mín löng og skemmtileg helgi!!:D

Það er nefnilega að koma vetrarfrí í skólanum og í tilefni að því ætlum við Guðrún Linda + Börkur + gestir að skella okkur í bústað;) Hlakka til!! Tjilla í pottinum, horfa á stelpumyndir og borða góðan mat (veit nú samt ekki hversu góður hann verður ef ég elda:S haha neinei djók)

En helgin sem var að líða var að mestu algjör snilld, urðu þarna nokkur skakkaföll en það er ekkert sem ég er ekki að jafna mig á...

Afmæli hjá Margréti á föstudaginn og bústaður með blikastrákunum á laugardaginn. Innihélt þessi bústaðarferð 4 og 1/2 klst. pottaferð þar sem mikið var rætt um heimsspekileg málefni, rúnt á Hellu kl. 6:30 um morguninn á bikiníinu og ullarpeysunni, sveitta hamborgara og diss á ÍR-inga!;) Fleeppaða lið maður! Já, frekar skrautleg ferð. Fór á kaffihús með Kvennógellunum á sunnudaginn. Það var nú nice...spjallað um geimverur og þessháttar skemmtilegheit:D

Ég er í eitthvað svo góðu skapi:D:D Sem er auðvitað bara gott! Æfingar alveg á fullu og maður með harðsperrur út um allt! Það er nú samt eitthvað að minnka sem betur fer;) Er einmitt að fara að lyfta á eftir;) Erum til allrar hamingju ekki lengur að lyfta í sveitta sundlaugarklefanum! Sjæse! Það var heví sveitt maður!!! Dáist að sundfólkinu fyrir að lifa af þarna niðri.

Ég fer svo alveg að skella myndum inn frá hinum og þessum uppákomum. Helga Björt var eitthvað farin að skamma mig fyrir að vera ekki búin að því en ég meina, þegar maður á svona stórt minniskort þá er maður nú ekki alveg að tæma apparatið á hverjum degi!:P

Ætla að skunda á æfingu...

Kv. Sandra


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 28
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 52977
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti